Unnið var að innra mati í samræmi við námsmatshandbók leikskólans. Langtímaáætlun leikskólans um innra mat þarfnast hins vegar endurskoðunar og mun hún verða unnin í faghóp leikskólans næstkomandi vetur.
September – starfsmannasamtöl um komandi vetur
Október/Nóvember – ígrundunarsamtöl starfsfólks í samræmi við námsmatshandbók
Janúar – starfsmannasamtöl um líðan í starfi
Mars – Broskallamat/mat elstu barna á námi
Apríl/maí – starfsmannasamtöl um skipulagningu næsta vetrar
Maí – foreldrakönnun
Niðurstöður mats elstu barna
Börnin fóru einslega til samtals við hópstjóra sinn, Steindór Tómasson, og voru þá spurð hvernig þeim liði þegar þau færu í þær stundir sem spurt var um
Börnin í hópnum eru 7 talsins, bláa súlan sýnir svarið „vel“, sú rauða sæmilegt og gráa súlan þýðir að barnið hafi svarað að því liði illa í viðkomandi stund. Eins og sjá má líður öllum börnunum vel í íþróttum, tónlist, frjálsum leik og skólaheimsóknum. Útivist er greinilega misspennandi en úti er ævintýri – sem er svo sannarlega útivist fær betri svörun. Í þeim stundum er útivistin oftast lengri og farið út fyrir afgirta leikvelli.
Börnin svöruðu einnig opnum spurningum og voru allir á því að þeim liði almennt vel með kennurunum sínum, kennarar væru sanngjarnir og að þau gætu talað við kennara ef þeim liði illa.
Niðurstöður foreldrakönnunar
Í Maí var foreldrakönnun send til foreldra í tölvupósti. Í leikskólanum eru 43 börn og bárust 22 svör. Hægt var að svara könnuninni oftar en einu sinni ef foreldrar vildu svara fyrir sitthvort barnið. Spurningar með valmöguleikum voru alls 17, í kjölfarið fylgdu 3 opnar spurningar. Heildarniðurstöður foreldrakönnunar má nálgast hér hér verður fjallað um þau svör þar sem einhver óánægja kom fram.
Spurt var um ánægju foreldra með malarleikvöll leikskólans, meirihluti svarenda eða 64% svara því til að þau séu frekar eða mjög sammála fullyrðingunni. Hins vegar eru 32% svarenda frekar eða mjög ósammála fullyrðingunni.
Spurt var um ánægju foreldra með grasleikvöll leikskólans, meirihluti svarenda eða 77% svarenda svara því til að þau séu frekar eða mjög sammála fullyrðingunni. Hins vegar eru 19% svarenda frekar eða mjög ósammála fullyrðingunni.
Spurt var hvort foreldrar teldu leiksvæði leikskólans hvetja til fjölbreyttra leikja, meirihluti svarenda eða 73% voru frekar eða mjög sammála fullyrðingunni. Hins vegar voru 14% hlutlaus og önnur 14% frekar ósammála fullyrðingunni.
Spurt var hvort fólk væri ánægt með matseðil leikskólans, helmingur svarenda eða 50% voru frekar eða mjög sammála fullyrðingunni, 14% voru hlutlaus en 36% voru frekar eða mjög ósammála fullyrðingunni.
Af 17 lokuðum spurningum voru þetta einu spurningarnar þar sem foreldrur merktu við valmöguleikann frekar eða mjög ósammála. Við þau atriði þar sem hlutfall ánægðra er undir 80% fer það atriði á umbótaáætlun.
Í lok könnunar voru þrjár opnar spurningar og koma hér dæmi um svör foreldra.
„Lýstu því hvað þér þykir gott við leikskólann“
Starfsfólkið og þá sérstaklega kærleikurinn. Metnaðurinn fyrir góðu og faglegu starfi er yfirleitt mikill, barninu mínu líður mjög vel og finnst mér leikskólinn vera á mikilli uppleið hvað varðar breytingar og bætingar, Frábært umhverfi til náms, starfsfólk frábært og tekur alltaf á móti börnunum með hlýju og hrósi á vör. Mér finnst starfsemin metnaðarfull og áherslur stjórnenda til fyrirmyndar í alla staði. Andrúmsloftið er afslappað og viðmótið gott. Smæð leikskólans er kostur og nokkrir úr starfsliði eru framúrskarandi einstaklingar sem lyfta daglegu starfi.
„Lýstu því hvað þér þykir mega betur fara í leikskólanum“
Hádegismaturinn mætti vera heimilislegri. Byggja upp leiksvæði í kringum leikskólann. Maturinn kannski það helsta. Hef á tilfinningunni að barnið borði lítið sem ekkert suma daga. Færri starfsdagar. Maturin, leiksvæðin. Matseðillinn mætti innihalda minna af unnum matvörum. Hreinna fæði þó að meðlæti sé í boði með því í sósuformi og öðru. Aðstaðan, malarleiksvæði. Ég væri til í að sjá aðeins meiri metnað hvað varðar nám innan deildarinnar.
„Er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum“
Eina sem ég hef út á að setja er hádegismaturinn, mér finnst vanta alveg venjulegan heimilismat. Það þarf virkilega að fara að taka á þessum matarmálum hjá kokkinum. Þessar endalausu súpur og létt fæði er ekki matur fyrir börn í fullu starfi.
Eins og sjá má er samhljómur í svörum við opnum spurningum og þeim lokuðu spurningum þar sem óánægja kom fram. Mikilvægt er að huga að uppbyggingu leiksvæðis og fer það málefni á umbótaáætlun leikskólans. Þá er töluvert um athugasemdir vegna matseðils leikskólans og í samræmi við áherslur um heilsueflandi leikskóla er mikilvægt að setja fram heildstæða stefnu hvað varðar næringu barna, hvort heldur sem er morgunmat, hádegismat eða kaffitíma.
Umbótaáætlun
Á umbótaáætlun undanfarin ár má sjá það markmið að gera umhverfi á útisvæði meira hvetjandi til leiks og bæta leiksvæði
Undirrituð telur það vænlegast til árangurs að vinna að framtíðarskipulagi leikvallar á svæði vestan við húsið, þar sem nú er grasleikvöllur leikskólans. Væri það í samræmi við þær hugmyndir sem fram hafa komið um uppbyggingu leikskólans á komandi misserum. Til rökstuðnings má benda á að leiktæki á malarleikvelli eru komin mjög til ára sinna. Nýjustu leiktækin eru frá árinu 2007 en rólur voru færðar úr Mýrarkoti á sínum tíma og má leiða líkum að því að þær séu frá árinu 2000, en á gömlum myndum sést þegar verið er að setja þær upp á leikvelli Mýrarkots. Þá gerðu BSI og heilbrigðiseftirlit úttektir á leiksvæðum leikskólans, í október og maí og í skýrslum beggja aðila er bent á fjölmörg atriði sem þarfnast lagfæringa og í sumum atriðum er krafist tafarlausra úrbóta.
Á úrbótaáætlun fer einnig að bæta matseðil leikskólans. Mikilvægt er að vinna að heildstæðri stefnu um næringu barna, sem helst þá í hendur við þá stefnu sveitarfélagsins að vera heilsueflandi sveitarfélag og þá viðleitni leikskólans að vera heilsueflandi leikskóli. Þar sem leikskólinn hefur ekki sjálfstæð yfirráð yfir mötuneyti þarf það að vinnast í samráði við skólastjóra Laugalandsskóla og matráð.
Ábyrgðarmaður, Kristín Ósk Ómarsdóttir leikskólastjóri