
Leikskólinn Laugaland tók til starfa í maí 1996 og var þá staðsettur í Mýrarkoti, húsnæði sem nú hefur verið rifið. Sumarið 2007 flutti leikskólinn í sama húsnæði og hýsir Laugalandsskóla, í rými sem áður hét Súlnasalur. Fyrstu 20 árin var leikskólinn einnar deildar en 1. september 2017 var starfsemi leikskólans skipt upp í eldri og yngri deild. Yngri deildin fékk nafnið Holt og var hún áfram til húsa í gamla Súlnasalnum. Eldri deildin fékk nafnið Land og var hún staðsett á efri hæð hússins, í þeim hluta hússins sem áður hýsti sveitarstjórnarskrifstofur Holta- og Landsveitar. Í desember 2024 opnaði þriðja deild leikskólans. Sú deild fékk nafnið Ásar og er staðsett í þeim hluta hússins sem áður hýsti sveitarstjórnarskrifstofur Ásahrepps.
Áætlað er að fjöldi barna við leikskólann verði 44 veturinn 2025-2026.
Byggðasamlagið Oddi bs. er rekstraraðili leikskólans en að baki byggðasamlaginu standa sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur. Í gegnum byggðasamlagið reka þessi sveitarfélög fjórar skólastofnanir, Leikskólann Laugaland, Laugalandsskóla, leikskólann Heklukot og Grunnskólann á Hellu.
Nánar má lesa um Byggðasamlagið Odda hér.