Spennandi nýtt starf við Leikskólann Laugaland

Leikskólinn Laugaland auglýsir eftir:

Sérgreinastjóra heilsueflingar og útikennslu – 100% staða

Starfslýsing:

Framundan eru spennandi verkefni á sviði heilsueflingar og útikennslu og mun sérgreinastjóri halda utan um þá vinnu með leikskólastjóra. Má þar helst nefna:

  • Innleiðing YAP leikskólafimi
  • Heilsueflandi leikskóli
  • Fræ framtíðarinnar – 30 ára afmælisverkefni leikskólans tengt útikennslu

Þá mun sérgreinastjóri einnig hafa yfirumsjón með:

  • Hreyfistundum allra árganga
  • Skipulagðri útikennslu allra árganga

Leikskólinn Laugaland er þriggja deilda leikskóli með 45 nemendur. Við leikskólann eru fjölbreytt tækifæri til kennslu úti í náttúrunni. Þá eru skipulagðar stundir í íþróttasal og sundlaug vikulega. Í tilefni af 30 ára afmæli leikskólans nú í vor hefur sveitarfélagið úthlutað leikskólanum sérstöku svæði til útikennslu og framundan er uppbygging svæðisins með áherslu á fjölbreytta nýtingu á borð við ræktun matjurta, útikennslustofu og hænsnabúskap, þegar fram líða stundir.

Menntun, hæfni og reynsla:

  • Leyfisbréf kennara
  • Reynsla eða menntun á sviði íþróttakennslu og/eða heilsueflingar
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir starfinu

Fríðindi í starf:

  • Full vinnustytting, tekin út á föstudögum, í dymbilviku og milli hátíða um jól
  • Frítt fæði
  • Fatastyrkur

Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Ráðið er í starfið frá ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 25. apríl. Umsóknum skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Umsækjendur þurfa einnig að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Ómarsdóttir, leikskólastjóri, á leikskólinn@laugaland.is eða í síma 487-6633/866-2738.