Heimsókn Forseta Íslands

Í dag urðum við þess heiðurs aðnjótandi að taka á móti Forseta Íslands, frú Höllu Tómasdóttur og eiginmanni hennar. Aðdragandi heimsóknarinnar er sá að guli hópur (árgangur 2021) fékk sérstakan áhuga á forsetunum fyrir rúmu ári. Í haust ákváðum við síðan að halda upp á afmæli Höllu með því að halda klútadag, þar sem öll börn útbjuggu sína eigin klúta. Í framhaldinu sendum við henni bréf með myndum af börnunum og buðum henni í heimsókn til okkar í tilefni af 30 ára afmæli leikskólans okkar.

Í dag var síðan komið að stóru stundinni. Börnin voru ákaflega spennt að hitta Höllu en heimsóknin hófst á því að Halla átti spjall við elstu börn leikskólans. Í framhaldinu komu börnin af yngri deildunum og hver hópur söng lag fyrir Höllu. Saman sungum við síðan afmælislagið fyrir leikskólann okkar. Við enduðum síðan á því að syngja Lubbalagið um málhljóðið H, en það er einmitt hljóðið hennar Höllu,

Eftir að yngri börnin höfðu snúið aftur á sínar deildir fóru tveir elstu árgangarnir með Höllu út á nýja útikennslusvæðið okkar, Mýrarkot, og gróðursettu þau þar saman 12 hindberjarunna. Þessi gróðursetning markar upphafið að notkun svæðisins en uppbygging útikennslusvæðisins er 30 ára afmælisverkefni leikskólans. Framundan eru því ákaflega spennandi tímar við mótun svæðisins.

Það er óhætt að segja að Halla hafi gefið sér góðan tíma með börnunum, svaraði spurningum þeirra af einlægni og átti síðan góða stund við gróðursetningu áður en komið var að því að heimsækja grunnskólann. Við þökkum Höllu af heilum hug fyrir að gefa sér tíma til að koma og hitta börnin okkar af þessu tilefni og nefndi hún það oftar en einu sinni að þetta væri eitt fallegasta boð sem hún hafi fengið.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá heimsókninni í dag.