Uppbygging útikennslusvæðis

Í sumar sótti leikskólinn um styrk til Landsvirkjunar til uppbyggingar útikennslusvæðis leikskólans. Í lok ágúst bárust síðan þær fréttir að Landsvirkjun hefði ákveðið að veita 300.000 krónum úr samfélagssjóði fyrirtækisins til leikskólans.

Þróun útikennslusvæðisins er 30 ára afmælisverkefni leikskólans og nefndum við verkefnið Fræ framtíðarinnar. Í vor auglýstum við eftir sérgreinastjóra heilsueflingar og útikennslu og var Margrét Ólafsdóttir, kennari og íþrótta- og heilsufræðingur ráðin í starfið. Framundan er mikil uppbygging á svæðinu, en forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir vígði svæðið síðastliðið vor með elstu börnum leikskólans.

Í leikskólanum er rík hefð fyrir því að nýta fjölbreytt umhverfi leikskólans til náms og leikja. Með verkefninu Fræ framtíðarinnar er tekið skref til þess að gera útikennslu enn markvissari með því að skapa aðstæður þar sem börn geta tekið þátt í ræktun eigin matvæla, eldun þeirra og fylgst með hringrás frá fræi til moltugerðar. Fræ framtíðarinnar sný að því að byggja upp framúrskarandi útikennslusvæði við leikskólann þar sem áhersla verður lögð á sjálfbærni, heilsueflingu og útikennslu í sínu víðasta formi.

Styrkurinn frá Landsvirkjun nýttist okkur mjög vel en ákveðið var að fjárfesta í Glamping tjaldi sem þegar hefur verið komið fyrir á svæðinu. Starf í tjaldinu er þegar hafið, en þar var jógastund í gær og á myndunum má sjá stúlkur úr elsta hóp leikskólans njóta þeirrar kyrrðar sem tjaldið býður upp á fyrir slíkar stundir. Á einni stund má síðan sjá leikskólastjóra, Kristínu Ósk ásamt sérgreinastjóra, Margréti fyrir framan tjaldið góða.