Sundtímar hafnir á ný eftir vetrarfrí

Hér við Leikskólann Laugaland erum við svo lánsöm að geta boðið tveimur elstu árgöngum leikskólans upp á sundtíma. Að hausti og vori fara börnin vikulega í sundtíma með Sóley Margeirsdóttur íþróttakennara og starfsfólki leikskólans. Þessa tíma þarf að manna vel svo ofan í laugina fer Sóley, ásamt þremur starfsmönnum leikskóla og til viðbótar eru einn til tveir starfsmenn á bakkanum. Í tímunum er mikil gleði og hvert barn fær þann stuðning sem það hefur þörf fyrir. Markmiðin með sundtímunum er að efla öryggi barnanna í sundlauginni, venja þau reglurnar sem gilda í kringum sundkennslu - hvort heldur sem er fataklefana eða laugina sjálfa. Sundtímarnir snúast mikið um leiki í vatninu, finna dýr sem þau færa milli bakkanna. Fyrir þau sem vilja má líka hoppa ofan í laugina og sumir eru farnir að synda og geta þá synt bakka á milli. Í lok tímans er síðan kveikt á rennibrautinni og þangað fara þeir sem vilja og hafa þá tækifæri til að fara hverja bununa á fætur annarri.

En eins og áður sagði fær hvert barn þann stuðning sem það þarf, sumir þurfa að halda í hönd starfsmanns fyrstu tímana á meðan aðrir hoppa óhikað út í laug. Að sama skapi þurfi sumir aðstoð til að þora í rennibrautina og þá eru traustar hendur sem grípa börnin í þeim aðstæðum. Markmiðið er alltaf að börnin öðlist öryggi í sundlauginni á eigin forsendum og starfsfólkið sé þar til að styðja við þá þróun. 

Sundtímarnir væru þó ekki mögulegir nema fyrir gott samstarf leik- og grunnskóla hér á Laugalandi. Starfsfólki leikskóla er ekki heimilt að fara með svo stóran hóp barna í sund, en til þess þarf sérstakt leyfi. Við hins vegar fáum hana Sóley lánaða í verkefnið og erum afar þakklát fyrir.

Myndin sem hér fylgir var tekin af fyrsta sundtíma ársins 2026, í dag 23. febrúar.