Leikskólinn Laugaland verður LAB skóli jákvæðs aga

Bandarísku samtökin um jákvæðan aga (PDA) hafa samþykkt umsókn leikskólans um að vera svokallaður LAB skóli fyrir komandi skólaár. Þetta er mikill heiður fyrir leikskólann og viðurkenning á því starfi sem hér fer fram í tengslum við jákvæðan aga.

Á hverju ári auglýsa bandarísku samtökin eftir skólum til að taka þátt í LAB verkefninu. Á bilinu 20-40 skólar eru samþykktir til þátttöku ár hvert. Það er því mikil upphefð fyrir okkur hér við Leikskólann Laugaland að hafa hlotið samþykki fyrir þátttöku.

Að vera LAB skóli felur í sér að vera fyrirmyndarskóli í innleiðingu jákvæðs aga en undanfarin ár höfum við unnið markvisst að innleiðingu jákvæðs aga hér við leikskólann. Það er markmið okkar að jákvæður agi verði leiðarljós í öllu starfi leikskólans og munum við á komandi misserum leggja aukna áherslu á að kynna jákvæðan aga fyrir foreldrum. 

Það sem þátttaka í þessu verkefni gefur starfsfólki leikskólans er aukið aðgengi að fræðsluefni ásamt þátttöku í alþjóðlegu starfi um jákvæðan aga. Stjórnendur munu sitja mánaðarlega fundi með fulltrúum skóla frá 12 þjóðlöndum víðsvegar um heiminn. Við munum því fá aukna innsýn í notkun jákvæðs aga við mismunandi aðstæður og munum einnig geta deilt okkar reynslu.

Við leikskólann hefur verið starfandi teymi um innleiðingu jákvæðs aga og munum við áfram vinna ötullega að því að innleiða þessar aðferðir í allt okkar starf.