Á vorfundi Byggðasamlagsins Odda bs. þann 8. júní síðastliðinn lagði leikskólastjóri fram ársskýrslu leikskólans fyrir líðandi skólaár. Einnig var þá lögð fram starfsáætlun komandi skólaárs þar sem farið var lauslega yfir þá áhersluþætti sem verða í starfinu á komandi ári.
Ársáætlun má lesa hér
Niðurstöður innra mats má nálgast hér
Starfið í vetur hefur auðvitað einkennst af því að nýr leikskólastjóri tók við stjórnartaumum síðastliðið haust. Saman hefur stjórnendateymi leikskólans síðan unnið að framtíðarsýn leikskólans. Það er ljóst að á næstu árum munum við leggja aukna áherslu á útikennslu og heilsueflingu og er það í samræmi við stefnu leikskólans að vera heilsueflandi leikskóli. Þá átti leikskólinn 30 ára afmæli og nýttum við tækifærið og ýttum úr vör afmælisverkefninu Fræ framtíðarinnar. Í því verkefni felst uppbygging útikennslusvæðis á gamla leikskólavellinum, Mýrarkoti. Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, vígði svæðið þann 21. maí síðastliðinn þegar hún gróðursetti þar hindberjarunna ásamt elstu börnum leikskólans. Framundan eru því afar spennandi tímar við uppbyggingu svæðisins.
Við munum áfram vinna með jákvæðan aga næsta vetur og vinna að því að efla þann þátt enn frekar á öllum deildum. Nú þegar hafa fjórir starfsmenn sótt réttindanámskeið í jákvæðum aga og er það stefna okkar að fleiri muni bætast við á komandi vetri. Í framtíðarsýn okkar er að allir fastráðnir starfsmenn hafi setið slíkt réttindanámskeið og að árlega verði boðið upp á námskeið fyrir foreldra um aðferðir jákvæðs aga.
Á yfirstandandi skólaári unnum við síðan skemmtilegt verkefni um námssöguskráningar þegar Elín Grétarsdóttir vann að lokaverkefni sínu við Háskóla Íslands. Í námsmatshandbók leikskólans er kveðið á um að skráningar skuli nýttar með markvissum hætti á öllum deildum en fram að þessu hefur okkur ekki tekist að innleiða þetta skráningarform í leikskólanum. Við gripum því tækifærið þegar Elín vann að sínu lokaverkefni og var öllu starfsfólki boðið að taka þátt í vinnu hópsins. Mikil og frjó umræða skapaðist í hópnum og til varð mikill lærdómur um börnin og námsferli hvers og eins. Á næsta vetri munum við vinna að því að efla þennan þátt enn frekar innan hverrar deildar.
Við munum síðan áfram vinna að því að verða heilsueflandi leikskóli. Gert er ráð fyrir að formlegri undirbúningsvinnu ljúki í ágúst og í framhaldinu verði unnið að þeim breytingum sem þarf að gera innan leikskólans til að uppfylla þau viðmið sem þarf.
Hér í leikskólanum er því mikið spennandi framundan. Ég hvet foreldra til að lesa ársskýrsluna okkar, þar má líka finna umbótaáætlun leikskólans en hún er afurð foreldrakönnunar sem gerð var nú í vor.