Nú í maí á Leikskólinn Laugaland 30 ára afmæli. Við munum gera okkur margt til skemmtunar á þessum tímamótum og hófum við afmælismánuðinn á því að fá Leikhópinn Lottu í heimsókn til okkar. Þau sýndu okkur söngvasyrpu úr Hundraðekruskógi og þar komu við sögu Eyrnaslapi, Gríslingur, Ugla og Gúra. Bæði börn og fullorðnir skemmtu sér konunglega enda Leikhópurinn Lotta þekktur fyrir að skemmta fólki á öllum aldri.
Eins og áður segir munum við gera ýmislegt skemmtilegt í tilefni afmælisins nú í maí og endum svo á vorhátíð og útskrift elstu barna fimmtudaginn 28. maí.

